

Deildarstjóri óskast til starfa í Leikskólann Sælukot, Þorra
Deildarstjóri óskast til starfa í Leikskólann Sælukot, Þorragata 1, 102 Reykjavík.
Sælukot er sjálfstæður leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði P.R.Sarkar sem nefnist Nýhúmanismi (Neo Humanism), ásamt Aðalnámskrá leikskóla. Í leikskólanum stunda börnin jóga og hugleiðslu (við hæfi barna) og borða vegan grænmetisfæði. Börnin eru á aldrinum 12 mánaða til 6 ára. Leikskólinn er í Litla Skerjafirði þar sem stutt er niður að sjónum og út á græn svæði.
Sælukot er fjögurra deilda leikskóli
Skemmtilegt og metnaðarfullt starf í gangi.
Við óskum eftir leikskólakennara sem er tilbúinn til að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera partur af okkar faglega og skemmtilega samfélagi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni.
Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu.
Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar og tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum. Loks skipuleggur deildarstjóri samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni, s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
Leikskólakennaramenntun.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
Lipurð og sveigjanleiki í sams
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta
Samgöngustyrkur
Leikskólinn Sælukot vinnur eftir ákvæðum styttingu vinnuviku og er vinnuvikan 36 klst. fyrir 100% starf
Frír matur á vinnutíma












