Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin
Frístundamiðstöðin Tjörnin

Táknmálstalandi aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili

Inngangur

Frístundamiðstöðin Tjörnin óskar eftir öflugum og metnaðarfullum táknmálstalandi einstaklingi í starf aðstoðarforstöðumanns í frístundaheimilinu Eldflauginni. Eldflaugin þjónustar börn í 1.-4. bekk Hlíðaskóla að loknum skóladegi og í skólafríum, en í skólanum er táknmálssvið og því eru allt í senn döff börn, foreldrar og starfsfólk í frístundaheimilinu Eldflauginni.


Frístundaheimilið Eldflaugin tilheyrir frístundamiðstöðinni Tjörninni, en auk Eldflaugarinnar starfrækir Tjörnin frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Frostheima fyrir börn úr 3. og 4. bekk Melaskóla, Grandaskóla og Vesturbæjarskóla, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Selið við Melaskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla og Undraland við Grandaskóla og eru þessi frístundaheimili í miklu faglegu samstarfi. Einnig starfrækir Tjörnin félagsmiðstöðvar fyrir börn í 5.-10. bekk við sömu skóla. Frístundamiðstöðin heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.


Markmið og tilgangur starfs

Að veita 6–9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímans eru höfð að leiðarljósi.Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra barna með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í frístundaheimilinu.Sjá skal til þess að öll börn njóti jafnræðis óháð uppruna, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum,stjórnmálaskoðunum, kynferði, kynhneigð, aldri, efnahag, ætterni, fötlun, heilsufari eða annarri stöðu.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og greinagerð.
Launakjör: Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en við lok ágúst 2025.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er..

Helstu verkefni og ábyrgð
  • # Umsjón með daglegri starfsemi frístundaheimilisins í samvinnu við forstöðumann
  • # Umsjón með faglegu innra starfi í samvinnu við forstöðumann
  • # Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd frístundastarfsins í samráði við samstarfsfólk og þátttakendur í starfinu
  • # Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra starfsmenn frístundamiðstöðvarinnar
  • # Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn
  • # Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda
  • # Hlúir að táknmáli og gerir því hátt undir höfði í starfinu
  • # Þátttaka í þverfaglegu samstarfi í kringum börnin
  • # Staðgengill forstöðumanns
Menntunar- og hæfniskröfur
  • # Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði
  • # Haldgóð reynsla af starfi með börnum
  • # Góð þekking á starfi frístundaheimila
  • # Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • # Skýr fagleg og uppeldisleg sýn á starf á vettvangi frítímans
  • # Þekking á íslensku táknmáli og döff samfélaginu
  • # Hæfni í samskiptum og sveigjanleiki 
  • # Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • # Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
  • # Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Sundkort
  • Menningarkort
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
Advertisement published3. June 2025
Application deadline16. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Sign skill.languageSign skill.language
Required
Intermediate
Location
Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags