Leikskólinn Jötunheimar
Leikskólinn Jötunheimar
Leikskólinn Jötunheimar

Leikskólasérkennari/Þroskaþjálfi

Leikskólinn Jötunheimar auglýsir eftir leikskólasérkennara/þroskaþjálfa frá og með 7. ágúst 2025.

Leitað er að leikskólasérkennara/þroskaþjálfa sem hafa áhuga á að starfa í leikskóla þar sem fram fer faglegt leikskólastarf með áherslu er á leik, samvinnu, traust og gleði. Í leikskólanum Jötunheimum er virkt lærdómssamfélag og teymisvinna en ásamt því er leikskólinn einnig Heilsueflandi leikskóli.

Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagsins Árborgar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla og öðrum lögum er við eiga.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í góðu starfsumhverfi barna og kennara. Í stefnu skólans er unnið með leik barna, heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti og umhyggjusamt námsumhverfi. Einkunnarorð leikskólans er Leikurinn á vísdóm veit.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum sem við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.
  • Skipuleggur sérkennslu á viðkomandi deild í samvinnu við deildarstjóra og sérkennslustjóra og leiðbeinir starfsfólki deildarinnar þannig að starfsfólkið taki þátt í kennslu barna sem þurfa sérkennslu
  • Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir hvert barn sem nýtur sérkennslu á deildinni í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einangrist ekki heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu.
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu á deildinni og situr fundi og viðtöl með þeim.
  • Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Ber að hafa náið samstarf við sérkennslustjóra og sérkennsluráðgjafa vegna barna sem njóta sérkennslu á deildinni.
  • Situr fundi þar sem fjallað er um málefni barna sem þurfa sérfræðiaðstoð eða sérkennslu á deildinni samkvæmt boðun yfirmanns eða hlutaðeigandi aðila.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varða starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf leikskólakennara.
  • Þroskaþjálfi.
  • Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum.  
  • Reynsla, hæfni og áhugi í starfi með börnum.  
  • Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Færni til að tjá sig í ræðu og riti.  
  • Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi

Styttri vinnuvika

Advertisement published5. June 2025
Application deadline18. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Norðurhólar 3, 800 Selfoss
Heiðarstekkur 10
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags