Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari/þroskaþjálfi - Skarðshlíðarleikskóli

Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir sérkennara/þroskaþjálfa í fullt starf.

Skarðshlíðarleikskóli er fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs. Hann er staðsettur að Hádegisskarði 1 í einungis 4 mínútna fjarlægð frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.

Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og er áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindarkenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.

Leikskólinn deilir húsnæði grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahúsi og bókasafni sem býður upp á mikla og spennandi möguleika á samstarfi sem er í stöðugri þróun.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sinnir kennslu og stuðningi við börn sem tekur mið af þörfum þeirra og aðstæðum
  • Skipuleggur sérkennslu á viðkomandi deild í samvinnu við sérkennslustjóra og deildarstjóra
  • Gerir skriflegar einstaklingsnámskrár fyrir hvert barn sem nýtur sérkennslu á deildinni í samráði við sérkennslustjóra og deildarstjóra
  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu og situr fundi og viðtöl með þeim
  • Tekur þátt í teymisvinnu með sérkennslustjóra og fleirum
  • Veitir faglega ráðgjöf og liðsinni til foreldra, kennara og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn) eða háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi sem slíkur
  • Framhaldsmenntun á sviði sérkennslu er kostur
  • Kennslureynsla og reynsla af sérkennslu æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Forgangur í leikskóla
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir leikskólastjóri í síma 527 7380

Umsóknarfrestur er til 6. júní 2025

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published23. May 2025
Application deadline6. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (24)
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari/þroskaþjálfi - Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsliði í sértækri heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Leikskólastjóri - Hlíðarberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmenn í tímavinnu – Lækur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Heimilisfræðikennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennarar á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Vinnuskóli - Biðlisti fyrir 18 ára og eldri
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar og aðstoðarflokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari á yngsta stig - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Hlíðarberg
Hafnarfjarðarbær