

Sérfræðingur í mannauðs- og launadeild
Langar þig að starfa í framsækinni mannauðs- og launadeild? Deildin tilheyrir stjórnsýslusviði og og er næsti yfirmaður mannauðsstjóri. Þessi flotta deild samanstendur af 11 manna teymi sem tekst á við fjölbreytt verkefni alla daga og vinna sameiginlega að því að veita góða þjónustu. Verkefnin eru fjölbreytt og í deildinni starfa t.d. mannauðsráðgjafar, launafulltrúar og launasérfræðingar. Núna vantar okkur launasérfræðing í teymið okkar og leitum við að aðila sem er talnaglöggur og hefur unnið við launavinnslu. Mikill kostur er ef þú hefur gaman af gagnagreiningu og finnst spennandi að þróa áfram með okkur t.d. PowerBI skýrslur og fleiri tól sem við erum að nýta okkur í dag.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn launavinnsla og skráningar í launa- og mannauðskerfið Kjarna
- Rýni og frágangur á gögnum tengdum launavinnslu
- Umbótastarf og þróunarvinna í Kjarna og Vinnustund
- Leiðbeiningar og ráðgjöf til stjórnenda varðandi launa- og kjaramál
- Gerð ráðningarsamninga
- Aðkoma að skýrslugerð fyrir stjórnendur tengt launa- og kjaramálum
- Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis tengt launamálum
- Önnur verkefni samkvæmt stafslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun (B.A/B.S) á sviði viðskiptafræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi æskileg s.s. launamálum og launavinnslu
- Þekking og reynsla af launakerfum og tímaskráningarkerfum
- Þekking á launakerfinu Kjarna kostur
- Sjálfstæði og skipulagshæfni
- Þjónustulund og jákvætt viðmót
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Nákvæmni í vinnubrögðum og töluglögg(ur)
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, [email protected]
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Visku.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2025.
Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
















































