Orkan
Orkan
Orkan

Gagnasérfræðingur

Við leitum að tæknisinnuðum og greiningarglöggum gagnagreinanda í okkar orkumikla teymi. Ef þú hefur brennandi áhuga á að umbreyta gögnum í nothæfar upplýsingar, býrð yfir færni til að hanna fallegar skýrslur og mælaborð og ert gefinn fyrir tækninýjungar, þá viljum við heyra frá þér!

Markmið Orkunnar er að einfalda líf viðskiptavina með snjöllum og þjónustumiðuðum lausnum. Við trúum því að framtíðin sé fólgin í nýtingu á fjölbreyttum orkugjöfum og tækni, og að þægindi framtíðarinnar snúist um að spara tíma og einfalda amstur dagsins.

Ertu tæknisinnuð/aður og með auga fyrir gögnum? Þá viljum við fá þig í okkar teymi.

Umsóknafrestur er til 23. júní 2025.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining og úrvinnsla viðskiptagagna til að styðja við ákvarðanatöku innan fyrirtækisins
  • Hönnun, þróun og viðhald á skýrsluumhverfi í Power BI
  • Samstarf við mismunandi deildir til að greina þarfir og þróa gagnalausnir
  • Smíði og viðhald SSAS teninga úr vöruhúsi gagna
  • Vinna með gögn úr Salesforce og öðrum upplýsingakerfum
  • Þátttaka í þróun á gagnainnviðum og ferlum innan UT teymis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla og þekking á sviði viðskiptagreiningar
  • Góð færni í skýrslugerð og framsetningu gagna
  • Grunnþeking á SQL, DAX, gagnalíkönum, gagnaskipan og gagnavinnslu
  • Þekking á Salesforce og Business Central er kostur
  • Tæknileg hugsun og áhugi á að vinna með stafrænar lausnir
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð hæfni til að vinna í teymi
Advertisement published11. June 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Fellsmúli 28, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.SQL
Professions
Job Tags