Tryggingastofnun
Tryggingastofnun

Sérfræðingur í gagnagreiningu

Tryggingastofnun óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi sérfræðing í gagnagreiningu á sviði Stafrænnar þróunar.
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og skipulögðum einstaklingi sem er reiðubúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining gagna og framsetning tölfræðilegra upplýsinga
  • Gerð skýrslna og mælaborða
  • Verkefnastjórnun, skjölun og umsjón með skýrsluumhverfi
  • Þjálfun og stuðningur við starfsmenn við notkun gagnagreiningarlausna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði hagfræði, viðskiptafræði eða verkfræði
  • Góð þekking á gagnagreiningu, úrvinnslu og framsetningu tölulegra gagna 
  • Reynsla af meðhöndlun og framsetningu gagna í PowerBI eða sambærilegum lausnum 
  • Þekking á SQL gagnagrunnsforritun og Oracle APEX eru kostir
  • Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  • Færni í samskiptum og góð þjónustulund 
  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti
Advertisement published10. June 2025
Application deadline16. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SQL
Work environment
Professions
Job Tags