
Sorpa bs.
Byggðasamlagið SORPA er í eigu sex sveitarfélaga; Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Hlutverk SORPU bs. er að annast meðhöndlun úrgangs og sinna þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna og á sama tíma endurspegla áherslur eigenda sinna í að ná markmiðum hringrásarhagkerfisins. SORPA bs. sér um rekstur móttöku- og flokkunarstöðvar, gasog jarðgerðarstöðvar, urðunarstaðar og sex endurvinnslustöðva. Þá hefur félagið einnig umsjón með grenndargámum fyrir hönd sveitarfélaganna, rekur nytjamarkaðinn Góða hirðinn og Efnismiðlun Góða hirðisins. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tólf talsins og eru höfuðstöðvar SORPU bs. á Köllunarklettsvegi 1 í Reykjavík

Sérfræðingur í fjárhagsgreiningum
SORPA leitar að framsýnum og lausnamiðuðum einstaklingi í hlutverk sérfræðings í fjárhagsgreiningum. Við leitum að einstaklingi sem hugsar gagnadrifið, vinnur vel með öðrum og hefur brennandi áhuga á að skapa virði og styðja við rekstrarárangur í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Safna, greina og túlka viðskiptagögn til að styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku
- Skilgreina lykilárangursmælikvarða (KPI) og hanna regluleg skýrslugerðarkerfi
- Vinna með með greiningarverkfærum og þróa viðskiptagreiningar með Power BI
- Veita innsýn í markaðsgögn, viðskiptavinahegðun og ný tækifæri til vöru- og þjónustuþróunar
- Taka þátt í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og stafrænni umbreytingu
- Framkvæma arðsemismöt á allar fjárfestingarákvarðanir samlagsins
- Vinna náið með rekstri, upplýsingatækni, fjármálum og markaðsmálum
- Leiða áfram áætlunarvinnu SORPU á hverjum tíma
- Vinna með næstu yfirmönnum að áframhaldandi þróun starfsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði, tölfræði, verkfræði, upplýsingatækni eða tengdu sviði
- A.m.k. 2–3 ára reynsla af greiningarstörfum, helst í viðskiptaumhverfi
- Hafa góða tölvufærni, þ.m.t. á Microsoft 365, SharePoint, Teams, SQL, PowerBI og Business Central
- Reynsla af að vinna við áætlunargerð
- Glöggt auga við meðhöndlun talna og nákvæmni
- Góð greiningarhæfni og hæfni til að miðla niðurstöðum skýrt og skilmerkilega
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Áhugi á nýtingu gagna til að bæta árangur og upplifun viðskiptavina
- Búa yfir góðri hæfni í samstarfi og mannlegum samskiptum
- Hafa gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published10. June 2025
Application deadline23. June 2025
Language skills

Required

Required
Location
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
Financial planningHuman relationsAmbitionMicrosoft Dynamics 365 Business CentralPower BISharePointIndependenceSQLBusiness strategyTeam workMeticulousness
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Verkefnastjóri bygginga (Project Manager Civil Work)
Samherji Fiskeldi

Forstöðumaður sölu og þjónustu
Dineout ehf.

Samræmingaraðili teikninga (Drawing Coordinator)
Samherji Fiskeldi

Aðstoðarverkefnisstjóri vélbúnaðar (Assistant Project Manager Mechanical)
Samherji Fiskeldi

Aðstoðarverkefnastjóri hönnunar (Project Engineer/Design Coordinator)
Samherji Fiskeldi

Við leitum að UT sérfræðingi
Myllan

Leiðandi sérfræðingur á Heilbrigðisþjónustusviði
Sjúkratryggingar Íslands

Sérfræðingur í rekstri og umsjón / Facilities & Utilities Specialist
Alvotech hf

Innheimtufulltrúi
DHL Express Iceland ehf

Flotastjóri & Mælingamaður
Fagurverk

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Fjármálastjóri
BSRB