BSRB
BSRB

Fjármálastjóri

BSRB leitar að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi á sviði fjármála og rekstrar til að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum á skrifstofu félagsins.

Viðkomandi ber ábyrgð á fjármálum og fjárstýringu fjármuna BSRB og tengdra aðila, fjárhagsáætlunum, eftirliti, samningagerð auk þess að stuðla að rekstur BSRB, sjóða bandalagsins og tengdra aðila sé skilvirkur. Viðkomandi hefur umsjón með gerð þjónustusamninga, ber ábyrgð á upplýsingatæknimálum og hefur umsjón með gerð fjármálaferla.

Um er að ræða tækifæri til að móta stefnu og verklag í fjármálum og rekstri innan stærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi. Viðkomandi vinnur náið með næsta yfirmanni sem er framkvæmdastjóri BSRB og öðru starfsfólki bandalagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjármálum og fjárstýring fjármuna BSRB og tengdra aðila.
  • Gerð fjárhagsáætlana, eftirlit með gerðum samningum fjárhagslegs eðlis og framkvæmd þeirra.
  • Ábyrgð á upplýsingatæknimálum, þjónustusamningum og samskiptum við þjónustuaðila.
  • Umsjón með innkaupum.
  • Umsjón með umbótaverkefnum og endurhönnun fjármálaferla.
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði viðskipta, fjármála, endurskoðunar eða rekstrar. Framhaldsmenntun er æskileg
  • Reynsla af fjármálum, rekstri, reikningshaldi og áætlanagerð.
  • Hæfni og reynsla í greiningu og framsetningu tölulegra gagna.
  • Reynsla af samningagerð er kostur.
  • Þekking og reynsla af notkun stafrænna lausna
  • Rík samskiptafærni, skipulagshæfileikar og gagnrýnin hugsun.
  • Reynsla af félaga- og bókhaldskerfi DK er kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Advertisement published12. June 2025
Application deadline23. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)