
Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu og rekstri netverslunar
Heildverslunin Rún ehf. óskar eftir kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða stafræna markaðssetningu og taka beina ábyrgð á uppbyggingu og daglegum rekstri netverslana félagsins.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir einstakling með frumkvæði, innsýn í netverslun og markaðssetningu auk vilja til að byggja upp og þróa öflugt stafrænt söluumhverfi með góðum stoðum í tækni og innviðum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur:
• Reynslu af rekstri netverslunar og stafrænum herferðum
• Þekkingu á e-commerce kerfum
• Sterka innsýn í hegðun neytenda á netinu
• Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð færni í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli, danska mikill kostur
Við bjóðum:
• Mikil áhrif í vaxandi rekstri með skýrri framtíðarsýn
• Sveigjanlegt og krefjandi starf í nánu samstarfi við stjórnendur
• Góðan stuðning innanhúss með innkaupadeild, kerfisstjóra og samstarfsaðila í pökkun og sendingum
• Tækifæri til að byggja upp stafræna sölu sem lykilstoð í vexti félagsins
• Ábyrgð á daglegum rekstri netverslana félagsins (B2C og B2B)
• Leiða og framkvæma stafrænar auglýsingaherferðir (Meta Ads, Google Ads o.fl.)
• Sköpun og birting efnis á vef og á samfélagsmiðlum
• Umsjón með herferðum, kynningum og aflsáttarkerfum í samstarfi við söluteymi og innkaup
• Greining á hegðun viðskiptavina, sölu og árangri herferða (A/B prófanir, ROAS, CTR o.fl.)
• Samstarf við kerfisstjóra, innkaupadeild og afhendingaraðila um áframhaldandi vöxt og upplifun viðskiptavina
- Háskólamenntun í markaðsfræði, viðskiptafræði, miðlun, upplýsingatækni eða sambærilegu sviði er kostur
- Mikilvægt er að viðkomandi hafi raunverulega reynslu af stafrænum herferðum og netverslun, óháð formlegu námi


