ECIT Virtus
ECIT Virtus

Launasérfræðingur

ECIT á Íslandi óskar eftir að ráða öfluga einstaklinga með reynslu og þekkingu af launavinnslu til starfa á skrifstofur ECIT í Reykjavík. Leitað er að sérfræðingum í bæði fullt starf og hlutastarf. Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Útreikningar á launum og launatengdum gjöldum fyrir viðskiptavini ECIT á Íslandi
  • Samskipti við lífeyrissjóði, stéttarfélög og opinbera aðila
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Góð þekking og reynsla af launaútreikningum er skilyrði
  • Þekking og reynsla af launa- og bókhaldskerfum
  • Þekking og reynsla af túlkun kjarasamninga
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, rík þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
  • Talnagleggni og mjög góð tölvukunnátta
  • Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð

ECIT á Íslandi er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði bókhalds- og launavinnslu sem rekur eina af stærstu launadeildum landsins. Launadeild ECIT á Íslandi sinnir launavinnslu fyrir félög og einstaklinga, innlend sem erlend. Hjá ECIT starfa um 110 sérfræðingar í bókhalds- og launavinnslu með aðsetur á 15 stöðum um land allt. ECIT á Íslandi rekur tvö félög sem eru ECIT Bókað ehf. og ECIT Virtus ehf. Hjá ECIT er lögð áhersla að starfsfólk geti tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt, verið lausnamiðað, þjónustulundað og eigi auðvelt með samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini félagsins. Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf með rökstuðningi um hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur starfsins. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Elísabet Ósk Guðjónsdóttir Mannauðsstjóri ECIT ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).

Advertisement published11. June 2025
Application deadline25. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skipholt 50D, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Payroll processingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags