Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

3D prentun í iðnaði

Frá hugmynd að prentuðum hlut – lærðu grunninn í 3D prentun og taktu prentarann með heim!

Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynnast 3D prentun frá grunni – sérstaklega iðnaðarfólki og tæknivæddum hugmyndasmiðum sem vilja nýta möguleika þrívíddarprentunar í starfi eða eigin verkefnum.

Markmiðið er að þátttakendur öðlist traustan grunn í notkun 3D prentara, hönnun eigin hluta, vali á efni og notkun viðeigandi hugbúnaðar – með það að markmiði að geta haldið áfram að nýta tæknina eftir námskeiðið.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Uppsetningu og notkun á Bambu Lab A1 Combo og öðrum Bambu prenturum
  • Hönnun í Fusion 360 og undirbúning prentunar
  • Bambu Studio og OrcaSlicer hugbúnað
  • Notkun efna, viðhald og eftirvinnslu
  • 3D skönnun og gæðastjórnun í prentun

Að loknu námskeiði á nemandi að:

  • Geta sett saman og rekið eigin 3D prentara
  • Hannað einföld módel til prentunar
  • Geta valið viðeigandi efni og stillingar
  • Kunna að nýta prentun í eigin verkefnum eða vinnu
  • Þekkja kosti og galla 3D prentunar

Þátttakendur þurfa að koma með eigin fartölvu og góða tölvumús. Prentarinn (Bambu Lab A1 Combo) er innifalinn í námskeiðsgjaldi og fylgir nemanda að námskeiði loknu. Ekki er þörf á fyrri reynslu af 3D prentun. Gjafabréf og afsláttarkjör gilda ekki, félagsaðilar Iðunnar fá niðurgreitt verð.

Starts
16. Sep 2025
Type
On site
Timespan
2 times
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories