Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur
Iðan fræðslusetur

Eldsmíði

Námskeið fyrir byrjendur og aðra sem vilja læra vinnuaðferðir í eldsmíði.

Eldsmíði á sér djúpar rætur í íslenskri sögu. Með eldi, hamri og steðja hafa smiðir um aldir mótað verkfæri og búnað til daglegra nota. Nú gefst tækifæri til að kynnast þessu gamalgróna handverki á byrjendanámskeiði hjá Fornverki í Höfnum.

Leiðbeinandi er Þröstur Sigmundsson eldsmiður, Norðurlandameistari í opnum flokki í eldsmíði 2026. Hann vann Norðurlandameistaratitilinn í opnum flokki í Tidaholm í Svíþjóð í júní 2026 og varð í öðru sæti á Íslandsmótinu í eldsmíði sama ár.

Það sem heillar Þröst við eldsmíðina er að umbreyta einföldu járnstykki í nytjahlut eða listmun. Hann leggur áherslu á samspil forms, notagildis og vandaðs frágangs og telur að alltaf gefist tækifæri til að læra og bæta sig. Með þátttöku Þrastar í Fornverki í Höfnum gefst byrjendum tækifæri til að kynnast lifandi handverkshefð undir leiðsögn verðlaunaðs eldsmiðs.

Hefst
6. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
3 skipti
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar