
Arion banki
Starfsfólk Arion banka er kjarninn í starfsemi bankans og kappkostar bankinn að búa vel að starfsfólki sínu.
Arion banki er lifandi vinnustaður þar sem starfsumhverfið einkennist af fagmennsku, framsækni, umhyggju og tryggð
Hjá Arion banka starfa um 900 manns, þar af eru 65% konur og 35% karlar. Kynjaskipting á meðal stjórnenda bankans er fremur jöfn og sama gildir um aldursdreifingu innan bankans en meðalaldur starfsfólks Arion banka er 42 ár.
Fjölmargt starfsfólk hefur sýnt bankanum og forverum hans mikla tryggð og eru dæmi um að starfsfólk sé með meira en 40 ára starfsaldur. Meðal starfsaldur hjá Arion banka er tíu ár.

Vörustjóri skjalastýringar
Arion banki leitar að vörustjóra skjalastýringar í nýtt og spennandi starf í einingunni vörustýring og sjálfvirkni í rekstrarumsjón á sviðinu rekstur og menning. Deildin hefur það hlutverk að vörustýra innri kerfum, þjónustu bankans og vinnur náið með öðrum sviðum.
Hlutverk vörustjóra er að bera ábyrgð á mótun og innleiðingu framtíðarsýnar og stefnu fyrir vegferð upplýsinga, vinnusvæða auk starfrænna og handbærra skjala, þvert á öll svið Arion. Vörustjóri leiðir og forgangsraðar verkefnum í nánu samstarfi við hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tryggja að raddir viðskiptavina séu hafðar til hliðsjónar í ferlum tengdum vinnu- og viðskiptavinaskjölum
- Vinna með hagsmunaaðilum og tryggja skýra sýn á upplýsingar og vinnuferla
- Vinna með upplýsingatæknisviði að skilgreiningu ferla og krafna fyrir hönnun og þróun tæknilausna
- Setja fram og fylgja eftir mælikvörðum um notkun, gæði og ánægju notenda
- Tryggja samræmingu í þróun skjala- og vinnusvæða
- Ber ábyrgð á eftirliti vegna skjala- og vinnusvæða
- Skipuleggja kynningar og fræðslu til hagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð reynsla af stýringu verkefna, skipulagningu og framkvæmd
- Góð leiðtogahæfni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Þekking og reynsla á fjármálamarkaði er kostur
- Þekking á skjalamálum, bæði stafrænna og handbærra er kostur
- Reynsla í að útbúa kynningarefni, koma fram og halda kynningar
- Áhugi á breytingastjórnun
- Afburða samskipta- og samvinnufærni og drifkraftur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSkipulagVerkefnastjórnunVörustjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gæðastjóri
Náttúruhamfaratrygging Íslands

Mannverk leitar að öflugum og reynslumiklum verkefnastjórum
Mannverk

Tengill og markaðsráðgjafi
Peel auglýsingastofa

Publishing Producer
Fenris Creations

Verkefnisstjóri á Reykhólum
Vestfjarðastofa

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu
Landsvirkjun

Hefur þú reynslu af verkefnastjórnun?
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í vörustýringu
Pósturinn

Framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?
Sveitarfélagið Hornafjörður

Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna
Hnit Artelia

Verkefnastjóri Listasmiðju
Ævintýraborg ið Eggertsgötu