
Krónan
Verslanir Krónunnar eru í dag 26 talsins auk Snjallverslun. 19 á höfuðborgarsvæðinu auk verslana á Akureyri, Akranesi, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum.
Á hverjum degi – allan ársins hring keppumst við, starfsfólk Krónunnar, við að koma réttu vöruúrvali til þín á eins ódýran hátt og mögulegt er. Þrátt fyrir lágt vöruverð gefum við engan afslátt af ferskleikanum.

Vöruflokkastjóri (Senior staða)
Við leitum að framsæknum einstaklingi með reynslu í vöruflokkastýringu til að leiða spennandi vöruflokka hjá Krónunni. Vöruflokkastjórar Krónunnar eru ábyrgir fyrir því að þróa vöruframboð í takt við stefnu Krónunnar og tryggja að við séum alltaf skrefi á undan í því að mæta þörfum okkar fjölbreyttu viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vöruflokkastýring á vel skilgreindum vöruflokkum
- Samskipti við innlenda og erlenda birgja og aðra samstarfsaðila
- Vöruval, verðlagning og greining á sölu og markaðstækifærum
- Þátttaka í herferðum, kynningum og þróun á upplifun í verslunum og stafrænu umhverfi
- Öflugt samstarf með kröftugu teymi Krónunnar sem brennur fyrir jákvæðri upplifun viðskiptavina og að hafa góð áhrif til framtíðar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur góða og haldbæra reynslu af innkaupum, vörustýringu og/eða vörumerkjastjórnun
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Hefur brennandi áhuga á dagvöru og þróun dagvörumarkaðar og fylgist með nýjungum
- Hugsar í lausnum og er óhræddur við að taka frumkvæði
- Er skipulagður og með næmt auga fyrir smáatriðum
- Er teymisþenkjandi og frábær í samskiptum
- Vill hafa áhrif og býr yfir verkefnagleði
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
- Aðgangur að velferðarþjónustu Krónunnar
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (2)
