
Vörður tryggingar
Vörður hefur það að markmiði að bjóða viðskiptavinum viðeigandi vátryggingarvernd á samkeppnishæfu verði. Félagið leggur áherslu á einföld og þægileg vátryggingaviðskipti og persónulega þjónustu.
Vörður hefur á að skipa þjónustulipru og vel upplýstu starfsfólki sem vinnur í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi. Lögð er áhersla á traust og áreiðanleika í samskiptum.
Lykillinn að farsælum rekstri Varðar er fólkið sem þar starfar. Við leggjum áherslu á starfsánægju, jafnrétti, gott starfsumhverfi, markvissa fræðslu og þjálfun starfsfólks og skemmtilegan vinnustað þar sem hver einstaklingur hefur áhrif og skiptir máli.

Vörustjóri líf‑ og heilsutrygginga
Vörður tryggingar leitar að metnaðarfullum og framsýnum vörustjóra til að leiða vöruþróun, innleiðingu og umbætur á líf‑ og heilsutryggingum félagsins. Starfið felur í sér ábyrgð á þróun, uppsetningu og skilmálum tryggingavara, ásamt eftirfylgni með gæðum og arðsemi. Vörustjóri gegnir lykilhlutverki í að tryggja skýrt, notendavænt og samkeppnishæft vöruframboð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun nýrra vara og endurbætur á núverandi vörum í takt við þarfir viðskiptavina og markaðar
- Greining markaðstækifæra, samkeppnisumhverfis og árangurs
- Fræðsla um vörur og eftirfylgni með sölu- og þjónustumarkmiðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, lögfræði eða annað sambærilegt
- Reynsla af líf‑ og heilsutryggingum, vöruþróun eða umbótastarfi
- Góð þekking á skilmálum og virkni tryggingavara
- Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og ábyrgðartilfinning
- Reynsla af vöruþróun, greiningu eða sambærilegum verkefnum er æskileg
- Góð samskipta‑ og samstarfshæfni
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiMarkaðsgreiningSkipulagVörustjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

