Krónan
Krónan
Krónan

Vöruflokkastjóri (Junior staða)

Við leitum að framsæknum og lausnamiðuðum einstaklingi sem brennur fyrir því að komast í stöðu vöruflokkastjóra hjá Krónunni og leiða spennandi vöruflokka. Við erum sérstaklega að leita eftir einstaklingi í junior stöðu sem fengi góða handleiðslu til þess að læra inn á starfið og vaxa í ábyrgð samhliða aukinni reynslu og færni. Vöruflokkastjórar Krónunnar eru ábyrgir fyrir því að þróa vöruframboð í takt við stefnu Krónunnar og tryggja að við séum alltaf skrefi á undan í því að mæta þörfum okkar fjölbreyttu viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna í vöruflokkastýringu með teymi á vel skilgreindum vöruflokkum
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja og aðra samstarfsaðila
  • Vöruval, verðlagning og greining á sölu og markaðstækifærum
  • Þátttaka í herferðum, kynningum og þróun á upplifun í verslunum og stafrænu umhverfi
  • Öflugt samstarf með kröftugu teymi Krónunnar sem brennur fyrir jákvæðri upplifun viðskiptavina og að hafa góð áhrif til framtíðar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er mikill kostur
  • Hefur brennandi áhuga á dagvöru og þróun dagvörumarkaðar og fylgist með nýjungum
  • Reynslu af innkaupum, vörustýringu og/eða vörumerkjastjórnun er kostur
  • Hugsar í lausnum og tekur frumkvæði
  • Er skipulagður og með næmt auga fyrir smáatriðum
  • Er teymisþenkjandi og frábær í samskiptum
  • Vill hafa áhrif og býr yfir verkefnagleði
Fríðindi í starfi
  • Styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
  • Aðgangur að velferðarþjónustu Krónunnar
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar