Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Verkefnastjóri hönnunar og ásýndar í HR

Háskólinn í Reykjavík óskar eftir öflugum og fjölhæfum hönnuði í samheldið teymi á samskiptasviði. Um er að ræða stöðu verkefnastjóra sem hefur umsjón með grafískri hönnun, ásýnd og útliti bæði innan og utan veggja HR. Viðkomandi er tengiliður í útlitstengdum málum við allar deildir og stoðsvið og ytri aðila sem koma að framleiðslu efnis.

Viðkomandi mun m.a. sinna gerð auglýsingaefnis fyrir alla miðla HR, hönnun á útliti fyrir sýningar og viðburði, gerð markaðsefnis í samstarfi við viðeigandi aðila, taka virkan þátt í kynningar- og markaðsstarfi, halda utan um allt prentað efni og vera leiðandi í ásýndarmálum háskólans bæði innan veggja hans og utan.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og framleiðsla á markaðsefni fyrir allar tegundir miðla  
  • Hönnun á útliti og uppsetning á efni í tengslum við viðburði og sýningar 

  • Hönnun og uppsetning á prentefni HR, t.a.m. bæklingum og skýrslum 
  • Hönnun og uppsetning merkinga í HR og umhverfi hans 

  • Samskipti við prentsmiðjur, auglýsingastofur, fjölmiðla o.fl. vegna birtinga og merkinga 

  • Þátttaka í hönnun á útliti fyrir vefi HR 

  • Umsjón með skjámiðlum í HR 

  • Uppsetning og umsjón með sniðmátum og hönnunarstöðlum 

  • Virk þátttaka í markaðs- og kynningarstarfi og verkefnum samskipta 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði grafískar hönnunar, grafískrar miðlunar eða hreyfihönnunar 

  • Reynsla af sambærilegu starfi í atvinnulífinu 

  • Mikill kostur ef viðkomandi hefur reynslu af markaðsstarfi 

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að halda utan um flókin verkefni  

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti 

  • Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund 

Auglýsing birt16. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar