

Hnit Artelia - Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna
Við hjá Hnit Artelia, leitum að hönnuði í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna. Verkefni á sviði samgangna geta innifalið hönnun vega, gatna, stíga og veitukerfa, ásamt gerð útboðsgagna og áætlana.
Það sem felst í starfinu:
Helstu verkefni sem þú sem hönnuður samgangna munt fást við:
· Koma að og/eða stýra fjölbreyttum verkefnum, stórum sem smáum, sem geta varðað undirbúning verkefna, hönnun og framkvæmd útboðs, eftirfylgni verkefna á framkvæmdatíma og/eða viðhalds og reksturs samgöngumannvirkja.
· Sem dæmi um verkefni má nefna; hönnun vega og breytingar á vegum og umhverfi, hönnun á götum og veitum í hverfum, hönnun á breytingum á núverandi götum t.d. vegna Borgarlínu, gerð vinnusvæðamerkinga, magntaka og gerð verklýsinga
· Samræma vinnu við ólík fagsvið, innan og utan Hnit Artelia.
· Tryggja framvindu verkefna, stýra gæðum, og stuðla að ánægju viðskiptavina og notenda.
Við leitum að einstaklingi sem
· Býr að menntun á sviði verkfræði eða tæknifræði, M.Sc. gráða æskileg.
· Hefur þekkingu og reynslu af sambærilegum verkefnum og greint er frá hér að ofan
· Býr yfir mikilli samskipta, skipulags- og samvinnuhæfni
· Hefur jákvætt viðhorf, frumkvæði og lausnamiðaða nálgun
· Hefur sjálfstæð og öguð vinnubrögð
· Býr yfir góðri kunnáttu í íslensku eða ensku; kunnátta á norðurlandatungumáli er kostur











