Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið

Launafulltrúi

Þjóðleikhúsið leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í starf launafulltrúa. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri þekkingu á launavinnslu og hæfni til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði launamála. Við leggjum ríka áherslu á sjálfstæð vinnubrögð, jákvætt hugarfar og góða samskiptafærni. Leitað er að einstaklingi sem er talnaglöggur, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt og tekið virkan þátt í að auka skilvirkni launa- og mannauðsferla sem stuðlar að umbótum og framþróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með launavinnslu og launaútreikningum

  • Skráning, afstemmingar og eftirlit með launagögnum

  • Túlkun og eftirfylgni kjarasamninga og þjónusta við stjórnendur og starfsfólk vegna launa- og kjaramála

  • Samvinna við bókhaldsteymi vegna launatengdra verkefna í uppgjörum ársins

  • Leiða reglulega endurskoðun og umbætur ferla launavinnslu og eftirfylgni

  • Samskipti og aðstoð við stjórnendur og starfsfólk

  • Samskipti við innri og ytri hagaðila varðandi launatengdar fyrirspurnir

  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði, þátttaka í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra ferla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af launavinnslu er skilyrði

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Góða almenna tölvukunnáttu og reynsla af launakerfum ástamt öðru kerfum, s.s. Microsoft kerfum og geta til að vinna með gögn. Þekking á umhverfi og launakerfum ríkisstofnana er kostur

  • Framúrskarandi skipulags- og samstarfsfærni, jákvætt viðmót og þjónustulund

  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð

Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hverfisgata 19, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar