
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Hjúkrunarfræðingur
VÍS leitar að hjúkrunarfræðingi í starf sérfræðings í líf- og heilsutryggingum. Starfið hentar einstaklega vel fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur starfað í heilbrigðisþjónustu og vill nýta fagþekkingu sína í mati á útgáfu á líf- og heilsutryggingum. Viðkomandi þarf að vera með framúrskarandi þjónustulund, góða samskiptahæfni og ríka umbótahugsun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áhættumat og útgáfa líf- og heilsutrygginga
- Faglegt mat á heilsufarsupplýsingum og öðrum gögnum sem tengjast áhættumati
- Samskipti við viðskiptavini í tengslum við áhættumat og tryggingavernd
- Ráðgjöf og faglegur stuðningur við starfsfólk í framlínu og önnur tengd teymi
- Þátttaka í umbótaverkefnum og þróun ferla á sviði líf- og heilsutrygginga
- Önnur tilfallandi verkefni innan teymis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Próf í hjúkrunarfræði og að lágmarki þriggja ára starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framúrskarandi þjónustulund, ástríða og metnaður fyrir því að veita úrvals þjónustu
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulag, fagmennska og nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt
- Geta til að vinna undir álagi og taka ákvarðanir á faglegum grunni
- Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Virkt starfsmannafélag sem veitir m.a. aðgang að orlofshúsum
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Frábært mötuneyti
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna
- Heilsufarsskoðun, bólusetning og heilsueflandi fræðsla
- Virkt starfsmannafélag sem býður m.a. upp á golfklúbb og aðgang að orlofshúsum
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur17. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Móttökuritari SÁÁ
SÁÁ

Executive Assistant
Borealis Data Center ehf.

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bráðalyflækningadeild Fossvogi
Landspítali

Sumarstarf í þjónustuveri bæjarskrifstofu
Akraneskaupstaður

Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali

Launafulltrúi
Þjóðleikhúsið

Hjúkrunarforstjóri
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð

Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Heilsuvernd
Heilsuvernd

Hjúkrunarfræðingur - hjúkrunarheimilisdeild á Skjól hjúkrunarheimili
Skjól hjúkrunarheimili

Fræðslustjóri
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Útgáfu- og miðlastjóri
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga

Viðskiptastjóri
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.