

Verkefnastjóri í hugbúnaðarþróun
Við leitum að skipulögðum og drífandi verkefnastjóra til að taka þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum hjá Overcast.
Hlutverkið snýr að því að halda utan um verkefni, tryggja gott flæði í samskiptum og styðja teymi og viðskiptavini í gegnum allt verkefnaferlið.
Verkefnastjóri gegnir lykilhlutverki í að skapa yfirsýn, forgangsraða verkefnum og tryggja að upplýsingar, verkefni og ákvarðanir séu skýrar og aðgengilegar öllum sem koma að verkefnum.
Hjá Overcast er unnið að fjölbreyttum vef- og hugbúnaðarverkefnum fyrir ólíka viðskiptavini, ásamt þróun eigin hugbúnaðarlausna. Umhverfið er hratt, fjölbreytt og krefst góðrar yfirsýnar og samskiptahæfni.
-
Halda utan um virk þróunarverkefni og tryggja góða yfirsýn yfir stöðu þeirra
-
Forgangsraða verkefnum í samvinnu við teymi og viðskiptavini
-
Sjá um samskipti við viðskiptavini tengd verkefnum, verkbeiðnum og framvindu
-
Tryggja að verkefni, ákvarðanir og næstu skref séu skráð og aðgengileg
-
Fylgja eftir verkefnum og tryggja framvindu þeirra
-
Skipuleggja og leiða fundi þegar við á
-
Halda utan um verkefni í Asana og tryggja að verkefni séu uppfærð og verkbeiðnum útdeilt.
-
Samræma verkefni og upplýsingaflæði milli teymis, viðskiptavina og annarra hagaðila.
Við leitum að einstaklingi sem:
-
er skipulagður og með góða yfirsýn
-
hefur sterka samskiptahæfni
-
er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir frumkvæði
-
hefur áhuga á ferlum, skipulagi og stöðugum umbótum
-
getur unnið við mörg verkefni samhliða
-
á auðvelt með að vinna með ólíkum einstaklingum og teymum
-
hefur góðan almennan tækniskilning og áhuga á hugbúnaðarþróun.
-
er lausnamiðaður og nær að halda fókus í hröðu og fjölbreyttu umhverfi.
Hæfnikröfur:
-
Að lágmarki þriggja ára reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð eða sambærilegu tækniumhverfi
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt.
-
Reynsla af vinnu með teymum í hugbúnaðarþróun
-
Góð samskiptahæfni í töluðu og rituðu máli, bæði á íslensku og ensku.
-
Góð skipulagshæfni og geta til að halda yfirsýn yfir mörg verkefni samhliða
-
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt frumkvæði og lausnamiðaðri hugsun
-
Þekking á Agile aðferðafræði er kostur
-
Reynsla af verkefnastjórnunarkerfum á borð við Asana eða sambærilegt er kostur
- 30 daga sumarfrí
- Sveigjanlegur vinnutími
- Framúrskarandi starfsumhverfi
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Drykkir og möns á „barnum“
- Heilsustyrkur
Íslenska
Enska










