

Verkefnastjóri í fræðslu og þróun
Mímir leitar að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa á sviði fræðslu og þróunar með áherslu á íslensku sem annað mál. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér þróun, skipulagningu og verkefnastjórn námskeiða, einkum á sviði íslensku sem annars máls og framhaldsfræðslu.
Mímir er leiðandi símenntunarmiðstöð sem veitir fjölbreyttum nemendahópi aðgang að gæðamenntun. Við leggjum áherslu á fagmennsku, nýsköpun og markvissa þróun náms sem styður við þarfir einstaklinga og atvinnulífs.
Skipulagning, utanumhald og umsjón með námskeiðum og öðrum verkefnum í samræmi við gæðakerfi Mímis.
Samskipti við viðskiptavini og kynningar á vinnustöðum.
Þarfagreining og þróun nýrra námsleiða, m.a. í samstarfi við atvinnulífið.
Þróun og gæðamat náms á sviði íslensku sem annars máls.
Nýsköpun og framþróun í námi og kennslu.
Þátttaka í teymisvinnu og þróunarverkefnum.
Kynningar á fræðsluframboði Mímis.
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntun á háskólastigi og starfsreynsla sem nýtist í starfi, kennaramenntun er kostur.
Reynsla af þróun, skipulagningu og/eða kennslu í íslensku sem öðru máli er æskileg.
Góð enskukunnátta
Góð skipulagshæfni, greiningarhæfni og frumkvæði í starfi
Góð færni í samskiptum, menningarnæmni og geta til að leiða og taka þátt í teymisvinnu.
Þekking á framhaldsfræðslukerfinu, ÍSAT og/eða starfi símenntunarmiðstöðva er kostur.
Góð færni til að nota hugbúnað og tileinka sér tækninýjungar.
Íslenska
Enska










