Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Skjalastjóri

Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða skjalastjóra stofnunarinnar. Starfstöð er að Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Skjalastjóri ber m.a. ábyrgð á því að farið sé að gildandi lögum og reglum um skjalavistun opinberra aðila við vörslu og meðhöndlun skjala.

Starfið heyrir undir Þróunar- og tæknisvið og felur í sér náið samstarf með öðrum sviðum og deildum stofnunarinnar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri Þróunar- og tæknisviðs.

Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón og framkvæmd skjalamála, þ.m.t. umsjón með skjalakerfum, vistun, gagnaskilum, skipulagi og verklagsreglum vegna skjalakerfis.
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsmenn um skjalastjórn.
  • Leiðir þróun og umbætur á sviði skjalamála og innleiðingar nýjunga á verklagi við stafræna þróun skjalamála.
  • Ábyrgð á að farið sé eftir lagareglum um skjalavörslu og skylduskil til Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Frágangur og skil rafrænna gagna og pappírs til Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Þátttaka í þróun og einföldun ferla, með áherslu á stafrænar lausnir, sjálfvirkni og gagnadrifna nálgun.
  • Þátttaka í gæðateymi Vinnumálastofnunar.
  • Þátttaka í ritstjórnarteymi gæðahandbókar Vinnumálastofnunar.
  • Þátttaka í umbótastarfi innan stofnunar.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af skjalastjórnun er nauðsynleg.
  • Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfum er áskilin.
  • Góð tölvukunnátta sem og vilji og geta til að læra á ný tölvuforrit er skilyrði.
  • Þekking af gæðakerfum er kostur.
  • Þekking og reynsla af stafrænu umbreytingaferli og þróun í gæða-, skjala- og upplýsingamálum er kostur.
  • Haldgóð þekking af persónuverndarmálum er kostur.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og meðferð stjórnsýslumála er kostur.
  • Góð færni til að vinna í teymi og góð samskiptafærni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Gott vald á íslensku og ensku.
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grensásvegur 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar