
Ráðgjafi á Akureyri
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi.
Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.
Starfstöð ráðgjafa er á Akureyri.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
-
Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun.
-
Ráðgjöf við flóttamenn.
-
Ráðgjöf og vinnumiðlun við fólk með skerta starfsgetu.
-
Afgreiðsla og símavaktir.
-
Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila.
-
Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum og virkniúrræðum.
-
Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.
-
Önnur tilfallandi verkefni.
-
Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða önnur menntun á félags- eða heilbrigðissviði.
-
Reynsla af ráðgjöf er æskileg.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.
-
Góð þekking á íslensku samfélagi.
-
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar.
-
Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.
-
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hallveig Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri ([email protected]) og Svava Júlía Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ([email protected]) eða í síma 515-4800.
Íslenska
Enska



