

Náms- og starfsráðgjöf í öflugu fagteymi
Þekkingarnetið auglýsir eftir öflugum og áhugasömum náms- og starfsráðgjafa. Um er að ræða fjölbreytt starf í fagteymi þar sem unnið er náið með einstaklingum, atvinnulífi og fræðsluaðilum á starfssvæði Þekkingarnetsins. Viðkomandi mun taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu fólks og atvinnulífs á kraftmiklu starfssvæði Þekkingarnetsins.
-
Fjölbreytt og dýnamískt starf í öflugu fagteymi
-
Fjölskylduvænt og líflegt starfsumhverfi
-
Sveigjanlegt starfshlutfall 70–80%, með möguleika á auknu starfshlutfalli
-
Tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar
-
Þátttaka í verkefnum með það að markmiði að efla samfélagið og einstaklinga þess
-
Starfsstöðvar eru á Stéttinni Norðurþingi, Kistunni Langanesbyggð og Gíg Þingeyjarsveit
-
Náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa
-
Skráning gagna og utanumhald
-
Aðstoð til einstaklinga í tengslum við eflingu styrkleika, greiningu áhugasviða og markmiða
-
Upplýsingagjöf
-
Umsjón og utanumhald raunfærnimats
-
Umsjón og skipulagning námsleiða og námskeiða
-
Ráðgjöf varðandi starfsþróun
-
Þarfagreiningar og þróunarverkefni í samstarfi við atvinnulífið
-
Þátttaka í samráði og samstarfi um ráðgjöf í fullorðinsfræðslu á landsvísu
-
Önnur tilfallandi verkefni eftir því sem aðstæður kalla á
-
Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi eða önnur menntun sem styrkir fagteymið, t.d. á sviði félagsráðgjafar
-
Þekking á íslensku menntakerfi og vinnumarkaði
-
Reynsla af ráðgjöf, kennslu, verkefnastjórn eða símenntun er kostur
-
Góð samskiptahæfni og færni í upplýsingagjöf
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Góð hæfni til teymisvinnu
-
Skipulögð og fagleg vinnubrögð
-
Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli
-
Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér nýjungar
Íslenska
Enska










