Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Viltu vinna með okkur að farsæld barna?

Barna- og fjölskyldustofa leitar að sérfræðingi í verkefni tengd samþættingu í þjónustu í þágu farsældar barna. Um er að ræða 100% stöðu á farsældarsviði sem heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins. Starfsstöð er á höfuðborgarsvæðinu. Farsældarsvið sinnir verkefnum sem tengjast þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra meðal annars á sviði barnaverndar og fósturmála. Sviðið gegnir líka lykilhlutverki við innleiðingu samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna og styður við störf tengiliða, málstjóra og stuðningsteyma. Farsældarsviðið stýrir og skipuleggur ráðgjöf og fræðslu fyrir starfsfólk í barnavernd, veitir samstarfsaðilum og almenningi leiðbeiningar um barnavernd og stýrir fræðslu, þróun og innleiðingu aðferða við vinnslu barnaverndarmála. PMTO teymi stofunnar heyrir einnig undir sviðið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla og þekking á starfi félags-, heilbrigðis- og/eða skólaþjónustu.
Þekking á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
Góð íslensku og ensku kunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðgjöf fyrir þjónustuveitendur sem vinna með börnum og fjölskyldum.
Ráðgjöf, handleiðsla og fræðsla fyrir tengiliði, málstjóra og stuðningsteymi.
Aðstoð við innleiðingu samþættingar fyrir sveitarfélög og ríkisstofnanir.
Auglýsing birt12. maí 2022
Umsóknarfrestur1. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 21*, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar