Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Sérfræðingur í barnaverndarþjónustu / Félagsráðgjafi

Reykjanesbær leitar eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingum í 100% starf til að ganga til liðs við hóp metnaðarfullra sérfræðinga í barnaverndarteymi velferðarsviðs. Reykjanesbær leggur áherslu á að tryggja réttindi allra barna til öryggis, verndar og velferðar og að allir sem vinni með börnum leggi áherslu á réttindi barns og að veita börnum og fjölskyldum þeirra framúrskarandi þjónustu.

Starfið felur í sér verkefni á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002, vinnu í þágu farsældar barna skv. l.nr. 86/2021, teymisvinnu, hugmyndafræði Signs of safty og áherslu á þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga sem koma að málum barna og fjölskyldna.

Reykjanesbær er fjölskylduvænn og framsækinn vinnustaður sem bíður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu þjónustu og þverfaglegt samstarf með metnaðarfullum hópi fagmanna.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka barnaverndartilkynninga, skráning þeirra og könnun mála
  • Vinnsla barnaverndarmála
  • Vinnsla fósturmála
  • Ráðgjöf og stuðningur til barna og foreldra
  • Samþætting þjónustu
  • Teymisvinna og þverfaglegt samstarf við helstu samstarfsaðila barnaverndar
  • Virk þátttaka í uppbyggingu og þróun barnaverndarstarfs hjá sveitarfélaginu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Félagsráðgjafanám til starfsréttinda. Til greina kemur að ráða sérfræðinga með aðra menntun sem nýtist í starfi.
  • Viðbótarmenntun á sviði barnaverndar og farsældar barna kostur
  • Starfsreynsla í barnavernd er kostur
  • Reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi er æskileg
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Rík þjónustulund, frumkvæði og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu
  • Geta til að vinna undir álagi er mikilvæg
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög 
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FélagsráðgjafiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar