Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Við leitum að móttökuritara í teymið okkar

Heilsuvernd er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Heilsuvernd er einkarekið og ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Markmið Heilsuverndar er að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan.

Heilsuvernd óskar eftir að ráða starfsmann í móttöku Heilsugæslunnar Urðarhvarfi og Heilsuvernd. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur jákvæðni og lipurð í samskiptum að leiðarljósi og vill vera hluti af góðu teymi.

Um fullt starf er að ræða en lægra starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Almennur vinnutími er frá 8:00 til 16:00 ásamt stökum síðdegisvöktum á milli kl. 16:00 og 17:00.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka skjólstæðinga
  • Upplýsingagjöf til skjólstæðinga
  • Símsvörun
  • Tímabókanir
  • Innkallanir
  • Móttaka greiðslna
  • Dagsuppgjör
  • Önnur tilfallandi verkefni í móttöku
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Geta sýnt sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Góð færni í ensku og/eða öðrum tungumálum æskileg
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af Sögukerfi er æskileg
  • Heilbrigðisritaramenntun og/eða reynsla af sambærilegu starfi æskileg
Auglýsing birt11. september 2024
Umsóknarfrestur25. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar