

Verslunarstjóri | Útilíf í Kringlunni
Við leitum að drífandi verslunarstjóra til að stýra verslun Útilífs í Kringlunni.
Útilíf á sér stað í hjarta margra Íslendinga þar sem verslunin hefur verið hluti af áhugamálum og lífsstíl landsmanna síðan 1974. Útilíf rekur íþróttaverslun í Kringlunni ásamt útivistarverslun í Skeifunni 11. Þá rekur Útilíf einnig The North Face á Hafnartorgi.
Útilíf er áfangastaður, þar er gott að vera og versla – en er á sama tíma upphaf ævintýra og minninga. Við hvetjum fólk til að fara lengra og stefna að heilbrigðari sál í hraustum líkama, í sátt við umhverfið og samfélagið.
Útilíf leggur áherslu á að vera skemmtilegur og metnaðarfullur vinnustaður sem stuðlar að vexti og ánægju starfsfólks.
- Dagleg stjórnun og rekstur verslunarinnar.
- Samskipti, sala og þjónusta við viðskiptavini.
- Ábyrgð á sölu-, launa- og þjónustumarkmiðum.
- Mönnun vakta og ráðningar.
- Leiðtogahæfileikar, skipulagshæfni og frumkvæði.
- Rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
- Reynsla af verslunarstjórnun, sölumennsku og rekstri er kostur.
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta. Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
- Áhugi á hreyfingu og heilbrigðum lífstíl.
Góður starfsmannaafsláttur hjá Útilífi og The North Face Hafnartorgi
Íslenska










