Verslunarstjóri - Olís

Olís óskar eftir að ráða verslunarstjóra á eina af glæsilegustu þjónustustöðvum sínum í Reykjavík, en sú stöð inniheldur m.a. Grill 66 og aðra veitingaþjónustu.

Leitað er að aðila sem hefur mikinn metnað til að veita framúrskarandi þjónustu og hefur alltaf hag stöðvarinnar, viðskiptavina og starfsmanna að leiðarljósi.

Olís er verslunar- og þjónustufyrirtæki á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða upp á samkeppnishæfar vörur sem mæta þörfum og væntingum viðskiptavina og að reka hagkvæmt sölu-, dreifingar- og þjónustukerfi fyrir allt vöruframboð Olís.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri stöðvarinnar
  • Leiðtogi starfsfólks og stuðningur í starfi
  • Upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Mjög gott vald á íslensku og mikil færni í samskiptum
  • Mjög góð reynsla af rekstri og mannaforráðum
  • Reynsla af rekstrar-, áætlana- og birgðakerfum
  • Gott vald á Excel og Buisness Central er kostur
  • Brennandi áhugi á rekstri
Auglýsing birt11. nóvember 2024
Umsóknarfrestur18. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skútuvogur 5, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar