Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg er bæði stærsta sveitarfélag og vinnustaður landsins. Hjá okkur starfa um 11.000 einstaklingar á yfir 450 starfsstöðum sem eru eins ólíkir og þeir eru margir. Markmið okkar er að því að vera vinnustaður með aðdráttarafl fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk sem vinnur í þágu borgarbúa.
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Leitað er að öflugum og framsæknum leiðtoga til að leiða málaflokkinn inn í spennandi tíma.
Skóla- og frístundasvið ber ábyrgð á skipulagi, rekstri og þjónustu leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva og hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum. Jafnframt heyrir rekstur skólahljómsveita og eins tónlistarskóla undir sviðið.
Markmið sviðsins er að veita börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða skóla- og frístundaþjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð barna að leiðarljósi. Þjónusta sviðsins snertir rúmlega 22 þúsund börn og fjölskyldur þeirra. Fjöldi starfsfólks á sviðinu er um sex þúsund.
Launakjör sviðsstjóra heyra undir ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Sviðsstjóri heyrir beint undir borgarstjóra og um störf hans gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda hjá Reykjavíkurborg. Ráðið er í starf sviðsstjóra af borgarráði til fimm ára í senn.

Ábyrgðasvið
- Ábyrgð á stjórnun, framkvæmd og samhæfingu þjónustu skóla- og frístundasviðs í samræmi við lög og reglugerðir, menntastefnu Reykjavíkurborgar og aðrar stefnur borgarinnar sem málaflokkinn varða.
- Ábyrgð á rekstri og stjórnsýslu sviðsins, þ.m.t. fjármálum og starfsmannamálum.
- Ábyrgð á framkvæmd skóla- og frístundaþjónustu í miðstöðvum borgarinnar.
- Undirbúningur mála fyrir skóla- og frístundaráð og ábyrgð og eftirfylgni með ákvörðunum ráðsins.
- Stefnumótun í skóla- og frístundamálum í samvinnu við skóla- og frístundaráð.
- Forysta við þróun og innleiðingu nýrra hugmynda og úrræða í skóla- og frístundamálum ásamt mati á árangri og eftirliti.
- Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlun ásamt annarri áætlanagerð fyrir skóla- og frístundasvið.
- Samráð og samstarf við sjálfstætt starfandi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Reykjavík.
- Samráð og samstarf við opinbera aðila í skóla- og frístundamálum innanlands og utan.
- Tilheyrir yfirstjórn og neyðarstjórn Reykjavíkurborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er nauðsynleg.
- Víðtæk þekking og reynsla af málefnum leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs.
- Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla ásamt reynslu af því að leiða breytingar.
- Víðtæk þekking og reynsla af rekstri og mannaforráðum.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, stefnumótunarvinnu, þjónustustarfsemi og áætlunargerð.
- Þekking og reynsla af samningagerð og undirbúningi samninga.
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Framsýni, metnaður, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Mjög góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.
Auglýsing birt8. nóvember 2024
Umsóknarfrestur8. desember 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
LeiðtogahæfniOpinber stjórnsýslaStarfsmannahaldStefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)
Deildarstjóri í launadeild
Fjarðabyggð
Þjónustufulltrúi skipulags- og byggingarmála
Fjarðabyggð
Ert þú öflugur leiðtogi?
Seðlabanki Íslands
Drekadalur - Deildarstjórar
Reykjanesbær
Drekadalur - Kennarar
Reykjanesbær
Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Verkefnastjóri farsældar barna
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Sérfræðingur í greiningu
Hagstofa Íslands
Rekstrarstjóri
Kæling Víkurafl
Deildarstjóri Öryggisþjónustu
Öryggismiðstöðin
Svæðisstjóri fagaðila - BYKO Akureyri
Byko