Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands

Verkefnisstjóri gagnaumsýslu

Laust er til umsóknar, fullt starf verkefnisstjóra í gagnaumsýslu (gagnahirðis) hjá GAGNÍS sem heyrir undir miðlæga gagnaþjónustu Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands.

GAGNÍS er gagnaþjónusta og varðveislusafn fyrir rannsóknargögn á Íslandi og er samstarfsverkefni allra háskóla á landinu. Hlutverk gagnaþjónustunnar er að taka við rannsóknargögnum til varðveislu og birtingar í opnum aðgangi, án endurgjalds, eftir alþjóðlegum gæðaviðmiðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Alhliða gagnahirðing og umsýsla gagna sem hýst eru í varðveislugagnasafni GAGNÍS
  • Umsjón með Dataverse gagnahýsingarkerfi GAGNÍS
  • Skráning gagna samkvæmt DDI staðli (e. Data Documentation Initiative)
  • Ráðgjöf og aðstoð við gagnaeigendur vegna gagna sem send eru til hýsingar hjá GAGNÍS
  • Ráðgjöf til gagnanotenda við leit og hagnýtingu gagna í opnum aðgangi
  • Þróun og viðhald verkferla varðandi móttöku og afhendingu gagna, gagnavernd og upplýst samþykki
  • Þróun og viðhald gæðahandbókar í samræmi við FAIR gæðaviðmið um umsýslu vísindagagna (e. FAIR Guiding Principles for Scientific Data Management)
  • Umsjón á vefsvæði GAGNÍS
  • Stuðningur og leiðbeiningar við gerð gagnastjórnunaráætlana
  • Samskipti við innlenda og erlenda hagsmuna- og samstarfsaðila 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi t.d.  með áherslu á aðferðafræði rannsókna og gagnaúrvinnslu, meistarapróf á tengdu sviði er kostur
  • Reynsla af gagnameðhöndlunarforritum er æskileg
  • Reynsla af meðhöndlun rannsóknargagna er kostur
  • Reynsla af birtingu gagna í opnum aðgangi er kostur
  • Nákvæmni og samviskusemi
  • Frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli 
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.FræðigreinarPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.VefumsjónPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar