Sorpa bs.
Byggðasamlagið SORPA er í eigu sex sveitarfélaga; Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Hlutverk SORPU bs. er að annast meðhöndlun úrgangs og sinna þannig lögbundinni skyldu sveitarfélaganna og á sama tíma endurspegla áherslur eigenda sinna í að ná markmiðum hringrásarhagkerfisins. SORPA bs. sér um rekstur móttöku- og flokkunarstöðvar, gasog jarðgerðarstöðvar, urðunarstaðar og sex endurvinnslustöðva. Þá hefur félagið einnig umsjón með grenndargámum fyrir hönd sveitarfélaganna, rekur nytjamarkaðinn Góða hirðinn og Efnismiðlun Góða hirðisins. Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tólf talsins og eru höfuðstöðvar SORPU bs. á Köllunarklettsvegi 1 í Reykjavík
Verkefnastjóri öryggis- og gæðamála
Sorpa leitar að drífandi og hvetjandi verkefnastjóra öryggis- og gæðamála. Verkefnastjóri öryggis- og gæðamála vinnur að uppbyggingu, þróun og eftirfylgni ferla sem styðja við að stjórnkerfið nái tilætluðum árangri, í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun og eftirfylgni samræmds stjórnkerfis, þ.m.t. skipulag innri og ytri úttekta, rýni stjórnenda, viðhald gæðahandbókar og stöðugar umbætur
- Stuðla að bættu öryggi og heilbrigði starfsfólks, verktaka og viðskiptavina
- Umsjón með áhættustýringu umhverfis- og öryggismála
- Leiðandi og leiðbeinandi hlutverki í vinnuverndar- og umhverfismálum, þ.m.t. þjálfun starfsfólks
- Eftirlit með hlítingu laga og reglugerða sem snúa að umhverfis- og öryggismálum
- Vinna með frávik, ábendingar og tækifæri sem verða til í starfseminni og stuðla að umbótahugsun
- Samskipti við vottunaraðila stjórnkerfisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla í uppbyggingu/rekstri stjórnkerfa sem styðjast við ISO staðla
- Góð þekking og brennandi áhuga á umhverfis-, gæða- og öryggismálum
- Leiðtogahæfni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og drifkraftur
- Mjög góð tölvufærni, þ.m.t. á Office og Sharepoint
- Gott vald á íslensku og ensku
- Sjálfstæð, nákvæm og vönduð vinnubrögð
Auglýsing birt18. október 2024
Umsóknarfrestur30. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaMjög góð
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)
Sérfræðingur í greiningum og áhættueftirliti
Festa lífeyrissjóður
Sérfræðingur í öryggisstjórnun
Verkís
Ert þú framsýnn og öflugur verkefnastjóri?
Fastus Heilsa
Verkefnastjóri
Röst sjávarrannsóknasetur
Verkefnastjórar í mannvirkjagerð
GG Verk ehf
Verkefnastjóri á Verkefnastofu ON
Orka náttúrunnar
Forstöðumaður nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga
Akureyri
Gæðastjóri/verkstjóri í fiskvinnslu
Einhamar Seafood ehf