Akureyri
Akureyri
Akureyri

Forstöðumaður nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga

Laust er til umsóknar spennandi starf forstöðumanns nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga á umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar. Um er að ræða 100% ótímabundna stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Umhverfis- og mannvirkjasvið hefur umsjón með öllum fasteignum í eigu bæjarins. Helstu verkefni þess eru nýframkvæmdir, kaup og sala eigna, viðhald eigna og útleiga þeirra. Einnig dagleg stjórnun framkvæmda bæjarins. Undir það fellur hönnun og mælingar, gerð og viðhald gatna og gangstétta, gatnalýsing, sorphirða, garðar og opin svæði. Þá heyra strætó og ferliþjónusta undir sviðið ásamt slökkviliði Akureyrar og rekstur skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og samræming verkefna á sviði nýframkvæmda, endurbóta, viðhalds og reksturs gatna og stíga.
  • Stjórnun og samræming á verkefnum umferðar- og gatnalýsingar ásamt umferðaröryggismálum og umferðamerkingum.
  • Stýring á skipulagi innkaupa, birgðahaldi og starfsmannahaldi.
  • Vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sína deild.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólapróf (BA., BS.) í byggingartæknifræði, byggingarverkfræði eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
  • Menntun á framhaldsstigi er krafist, sérsvið í gatna- og umferðarmálum kostur.
  • Reynsla af verklegum framkvæmdum á viðkomandi starfssviði.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og áætlunargerð.
  • Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verksviði.
  • Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingu nýrra hugmynda og vinnubragða.
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og þekking á teikniforritum.
  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt9. október 2024
Umsóknarfrestur28. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar