Akureyri
Akureyri
Akureyri

Verkefnastjóri í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóra í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja.

Um er að ræða 100% ótímabundna stöðu.

Á Akureyri finnur þú samfélag sem styður þig og fjölskylduna þína í fallegu umhverfi, vegalengdir eru stuttar og allt er innan seilingar.

Á sama tíma færð þú tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vaxa í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með nýframkvæmdum, endurbótum fasteigna og annarra mannvirkja
  • Gerð nýframkvæmdaáætlana
  • Umsjón með útboðsferli hönnunar og framkvæmdaverkefna
  • Stýring og eftirlit með framkvæmdum
  • Þátttaka í þróun á stöðluðum/bestu lausnum á sviði framkvæmda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólapróf í verk-, tækni- eða byggingarfræði eða sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Meistaragráða er kostur
  • Farsæl reynsla af verkefnastjórnun á hönnunar- og/eða framkvæmdastigi
  • Fagleg þekking á aðferðafræði verkefnastjórnunar. Vottun sem verkefnastjóri er kostur
  • Þekking á hönnunarferli og reynsla af hönnunarrýni
  • Ríkir samskiptahæfileikar, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
  • Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti
  • Góð enskukunnátta
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Auglýsing birt25. ágúst 2025
Umsóknarfrestur15. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar