Akureyri
Akureyri
Akureyri

Verkefnastjóri í innkaupastjórn

Fjársýslusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða verkefnastjóri í innkaupastjórn og innra eftirliti í 100% starf. Um er að ræða starf sem felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni, s.s. utanumhald og ábyrgð á útboðum, eftirlit með áætlunum og kostnaðargreiningar, þróun og uppsetningu á rekstrarskýrslum í Power BI, samskipti og miðlun upplýsinga til birgja, stjórnenda innan stjórnsýslunnar og kjörinna fulltrúa sem og markvissa gagnaöflun og skjölun gagna.

Verkefnastjórinn ber ábyrgð á eigin verkefnum.

Fjársýslusvið skiptist í þrjár deildir, bókhald, fjárreiðudeild og hag- og áætlanadeild þar sem verkefnastjóri í innkaupastjórn og innra eftirliti starfar. Innan hag- og ætlunardeildar er höfð umsjón með gerð starfsáætlana- og fjárhagsáætlanagerð sviða og stofnana bæjarins, og eftirfylgni með áætlunum. Deildin sér um spár um íbúa- og hagþróun í bænum, ráðgjöf og fræðslu til stjórnenda, stjórnunarúttektir á starfseiningum og útgáfu tölulegra upplýsinga sem varða bæjarfélagið. Þá annast deildin innkaupastjórn, undirbýr útboð á rekstrarvörum og rekstur tölvukerfa í áætlunargerð og gagnadreifingu. Jafnframt sinnir deildin innra kostnaðareftirliti.

Á fjársýslusviði er almennt unnið virka daga frá 8-16 en vinnutími er sveigjanlegur. Vinnutími fjársýslusviðs er 36,5 tímar á viku.

Um framtíðarstarf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun (BSc/BA eða sambærilegt) sem nýtist í starfi s.s. á sviði fjármála, viðskipta eða verkfræði.
Framúrskarandi færni á Excel og góð almenn tölvukunnátta.
Geta og færni til að öðlast þekkingu og tileinka sér notkun nýrra forrita.
Geta til að vinna sjálfstætt og markvist að eigin verkefnum.
Góð þekking á rekstri og reikningshaldi bæði á opinberum og almennum markaði er kostur.
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
Færni í mannlegum samskiptum, metnaður til að ná árangri í starfi og innleiða nýjungar.
Færni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
Þekking og reynsla af PowerBI gagnaframsetningartóli og gagnagrunnum er kostur.
Þekking og reynsla af forritun er kostur.
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast útboð á ýmsum rekstrarvörum og þjónustu fyrir stofnanir Akureyrarbæjar.
Vinna að innra eftirliti með rekstri samstæðu Akureyrarbæjar.
Ábyrgð á gerð og uppfærslu skýrslna í PowerBI gagnaframsetningartóli sem nýtast stjórnendum og kjörnum fulltrúum.
Söfnun og utanumhald ýmissa gagna innan og utan stjórnkerfis Akureyrarbæjar
Auglýsing birt9. júní 2021
Umsóknarfrestur15. júní 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar