
Distica
Distica er þjónustu- og dreifingarfyrirtæki á sviði heilbrigðis- og neytendavara. Við erum bakhjarl íslenska heilbrigðiskerfisins, en félagið tryggir að lyf, lækningavörur og aðrar nauðsynjar komist örugglega, hratt og af fagmennsku þangað sem þeirra er þörf.
Það er hlutverk sem við tökum alvarlega — og erum stolt af.

Innkaupafulltrúi með áherslu á greiningar
Vilt þú nýta gögn til að bæta innkaup, birgðastýringu og þjónustu?
Við hjá Distica leitum að öflugum og metnaðarfullum innkaupafulltrúa sem hefur brennandi áhuga á og reynslu af gagnagreiningu, innkaupum og birgðastýringu.
Í starfinu færðu tækifæri til að vinna með umfangsmikil gögn, greina tækifæri og styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku. Viðkomandi verður mikilvægur hluti af teymi sem vinnur að því að tryggja réttar birgðir, gott vöruframboð og skilvirka þjónustu á heilbrigðismarkaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með innkaupum og birgðastýringu fyrir umbjóðendur Distica.
- Greining sölu-, innkaupa- og birgðagagna.
- Spágerð og greining á eftirspurn.
- Eftirfylgni með birgðastöðu, framboði og afhendingargetu.
- Gerð greininga og tillagna sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku.
- Vinna náið með hagaðilum og umbjóðendum.
- Samskipti og samstarf við innlenda og erlenda birgja.
- Virk þátttaka í umbótum og áframhaldandi þróun gagnadrifinnar innkaupastýringar hjá Distica.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Mjög góð Excel-kunnátta.
- Reynsla af innkaupum, birgðastýringu, áætlanagerð eða gagnagreiningu.
- Góð greiningarhæfni og hæfni til að miðla niðurstöðum greininga á skýran hátt.
- Reynsla af greiningartólum, svo sem Power BI, er kostur.
- Reynsla af notkun BC og AGR eða sambærilegum kerfum er kostur.
- Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Frumkvæði, góð samskiptahæfni og áhugi á umbótum og þróun.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt19. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldFrumkvæðiGagnagreiningMannleg samskiptiMicrosoft ExcelPower BI
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




