Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Verkefnastjóri byggingarfulltrúa

MOSFELLSBÆR LEITAR AÐ VERKEFNASTJÓRA HJÁ BYGGINGARFULLTRÚA Á UMHVERFISSVIÐI

Verkefnastjóri starfar undir byggingarfulltrúa og annast almennt byggingareftirlit og úttektir, skráningu fasteigna sem og yfirferð umsókna og hönnunargagna. Þá veitir hann íbúum og öðrum hagaðilum ráðgjöf í byggingartengdum málefnum.

Mosfellsbær leitar að jákvæðum liðsfélaga sem er tilbúinn að taka að sér fjölbreytt verkefni, meðal þeirra er byggingareftirlit á verkstað, úttektir, samskipti og miðlun upplýsinga varðandi byggingarmál, yfirferð uppdrátta, utanumhald rafrænnar byggingargáttar, útgáfu vottorða og skráningu mannvirkja og aðkomu að skipulagsmálum.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í arkitektúr, byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða byggingafræði er skilyrði
Reynsla á sviði hönnunar- og mannvirkjagerðar er skilyrði
Þekking á lagaumgjörð byggingarmála er skilyrði
Reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
Þekking á verkefnastjórnun er kostur
Góð tölvukunnátta er skilyrði
Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli nauðsynleg
Frumkvæði og skipulagsfærni í starfi og faglegur metnaður er áskilinn
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt8. apríl 2021
Umsóknarfrestur2. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar