
Siðmennt
Siðmennt er félag siðrænna húmanista á Íslandi. Félagið er veraldlegt lífsskoðunarfélag og hefur að viðfangsefni þau viðhorf og lífsgildi sem eru persónulega mikilvæg og náin hverjum einstaklingi í leit að tilgangi og hamingju í lífinu. Siðrænir húmanistar leggja áherslu á að rækta siðræn gildi og þekkingarleit án vísana í yfirnáttúrleg fyrirbrigði. Siðmennt lítur svo á að sannfæringarfrelsi, trúfrelsi og tjáningarfrelsi teljist til almennra lýðréttinda. Þau skuli ná til allra og þau megi hvorki afnema né skerða undir neinum kringumstæðum.
Félagið var stofnað árið 1990 í kringum borgaralega fermingu en þróaðist fljótt í að vera fullgilt húmanískt félag með aðild að alþjóðasamtökum húmanista. Siðferðismál, þekkingarfræði og fjölskyldan eru kjarni þeirra viðfangsefna sem Siðmennt sinnir. Félagið býður nú upp á athafnarþjónustu fyrir helstu tímamót lífsins; fæðingu, fermingu, hjónaband og lífslok.

Verkefnastjóri athafnaþjónustu
Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, auglýsir eftir verkefnastjóra yfir athafnaþjónustu félagsins. Athafnaþjónusta Siðmenntar býður upp á athafnir á lífsins tímamótum, svo sem nafngjafarathöfn, fermingarathöfn, hjónavígslu og útför, en fyrir félagið starfa fjölmargir athafnarstjórar í verktöku. Um nýja stöðu er að ræða.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastjórnun, menntun/vottun kostur.
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
Góð almenn tölvufærni.
Góð enskukunnátta skilyrði. Færni í fleiri tungumálum kostur.
Þekking og reynsla af markaðsmálum og starfi félagasamtaka kostur.
Samsömun með húmanískum gildum og almennur áhugi og þekking á starfi Siðmenntar er kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við þjónustuþega og útdeiling athafna til athafnastjóra.
Utanumhald um skráningu athafna og almenn umsýsla athafnaþjónustu.
Ráðgjöf og stuðningur við athafnastjóra félagsins.
Skipulagning þjálfunar, fræðslu og símenntunar athafnarstjóra.
Aðkoma að skipulagi og framkvæmd stærstu viðburða félagsins, s.s. fermingarathafna.
Markaðsmál athafnaþjónustu og e.t.v. annarra þátta í starfsemi félagsins.
Gæðastjórnun athafnaþjónustu.
Hönnun, innleiðing og uppfærsla verkferla og verklagsreglna
Samskipti við stofnanir, yfirvöld og alþjóðasamtök húmanista er varða athafnaþjónustu.
Auglýsing birt11. febrúar 2022
Umsóknarfrestur20. febrúar 2022
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skipholt 50C, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Samskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSkipulagSveigjanleikiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Landsvirkjun

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála
Reykjanesbær

Verkefnastjóri í MICE
HL Adventure

Gæða- og umhverfisstjóri
Ferskar Kjötvörur

Verkefnastjóri við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Þróunarstjóri gervigreindar
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Sölustjóri
Ísorka

Liðsfélagi í markaðs- og framleiðsludeild
Iðan fræðslusetur

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Markaðsfulltrúi hjá Straumlind
Straumlind ehf