
Iðan fræðslusetur
Iðan er fræðslusetur í iðnaði og sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum og matvæla- og veitingagreinum. Námsframboðið er fjölbreytt og í stöðugri þróun en markmið Iðunnar er að stuðla að framúrskarandi færni, framþróun og nýsköpun meðal starfsfólks í iðngreinum.
Liðsfélagi í markaðs- og framleiðsludeild
Iðan fræðslusetur er leiðandi í sí- og endurmenntun fyrir íslenskan iðnað. Við leggjum áherslu á gæði, nýsköpun og þróun fræðslu sem eflir hæfni fagfólks og styður við framþróun iðngreina.
Við leitum að öflugum og skapandi framleiðslu- og viðburðafulltrúa sem hefur metnað til að takast á við fjölbreytt verkefni, á auðvelt með að vinna með fólki, er forvitinn um nýja tækni og óhræddur við að tileinka sér nýja þekkingu.
Starfið felur fyrst og fremst í sér skipulag og utanumhald framleiðsluverkefna og viðburða. Framleiðsluverkefnin spanna m.a. vefnámskeið, myndskeið, hlaðvörp, kynningarefni og annað fræðsluefni. Áhersla er lögð á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og áhuga á því hvernig tækni og nýjar miðlunarleiðir geta stuðlað að þróun fræðslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning og utanumhald fjölbreyttra framleiðsluverkefna
- Umsjón með verkáætlunum, tímasetningum og framvindu verkefna
- Þátttaka í vefverkefnum og þróun stafrænnar miðlunar
- Samskipti og samstarf við innri og ytri aðila
- Undirbúningur og framkvæmd viðburða og sýninga
- Þátttaka í öðrum verkefnum markaðs- og framleiðsludeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla á sviði framleiðslu, stafrænnar miðlunar eða verkefnaumsjónar
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og hæfni til teymisvinnu
- Frumkvæði, skapandi hugsun og lausnamiðuð nálgun
- Skilningur á vefumhverfi og samspili fræðsluefnis og tækni
- Forvitni um þróun stafrænnar fræðslu og nýjar leiðir til miðlunar þekkingar
- Sveigjanleiki og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur1. nóvember 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vatnagarðar 20, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

CNC starfsmaður í frumgerðarsmíði / CNC Machinist
Embla Medical | Össur

Starfsmaður í veitingaeldhús
Ráðlagður Dagskammtur

Fræðsluráðgjafi - Viltu nýta reynslu þína til að hjálpa vinnustöðum að ná árangri með fræðslu?
Akademias

Spennandi sumarstörf 2027 / Exciting Summer Jobs 2027
Alcoa Fjarðaál

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Production employee
Eldum rétt

Marketing Manager
Laki Power

Lyfjaskömmtun Apótekarans - framtíðarstarf
Apótekarinn

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali

Birtingasérfræðingur
Kontor Auglýsingastofa ehf

Pikkoló leitar að skapandi samfélagsmiðlafulltrúa!
Pikkoló ehf.