
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Markmið með starfsemi SSNE er að efla Norðurland eystra sem eftirsótt til búsetu og atvinnu. SSNE skal vera sterkur bakhjarl aðildarsveitarfélaga í sameiginlegum málum þeirra og stuðla að góðu mannlífi, lifandi menningarlífi og öflugri atvinnustarfsemi á starfssvæðinu. Hlutverk SSNE er að þjónusta sveitarstjórnir og atvinnulíf á starfssvæði landshlutasamtakanna til að ná framangreindum markmiðum.
Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allar sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, frá Siglufirði í vestri að Bakkafirði í austri, að Tjörneshrepp undanskildum. Heimili og varnarþing samtakanna er á skrifstofu SSNE á Húsavík. SSNE er landshlutasamtök 10 sveitarfélaga með um 33.000 íbúa.

Verkefnastjóri á sviði umhverfis- og atvinnuþróunar
Leitað er að öflugum verkefnastjóra á sviði umhverfis- og atvinnuþróunar með starfsstöð í Gíg í Þingeyjarsveit. Verkefnið er samstarf SSNE og Þingeyjarsveitar.
Um fullt starf er að ræða og er ráðið tímabundið til tveggja ára, með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Græn skref SSNE.
- Stuðningur við sveitarfélög á sviði loftslags- og úrgangsmála.
- Samantekt og miðlun sjálfbærniupplýsinga.
- Verkefni tengd fjölnýtingu jarðvarma.
- Verkefni tengd atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsveit.
- Önnur verkefni sem tengjast samfélags- og sjálfbærnimálum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Starfsreynsla á sviði verkefnastjórnunar.
- Þekking á sviði umhverfis- og orkumála.
- Reynsla af atvinnu- og byggðaþróunarverkefnum og/eða nýsköpun æskileg.
- Hæfni til að setja fram upplýsingar með aðgengilegum og fjölbreyttum hætti.
- Lausnamiðuð hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt7. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Gígur
Starfstegund
Hæfni
Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Verkefnastjóri við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Þróunarstjóri gervigreindar
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Sölustjóri
Ísorka

Gæða- og umhverfisstjóri
Ferskar Kjötvörur

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Civil Society Fund Transnational Officer, Uppbyggingarsjóður EES
Financial Mechanism Office (FMO)

Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali