Kvika banki hf.
Kvika banki hf.
Kvika banki hf.

Verkefnastjóri

Kvika banki leitar að öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra til að ganga til liðs við verkefnastofu bankans. Starfið felur í sér að leiða fjölbreytt verkefni innan samstæðunnar, allt frá umbótaverkefnum í rekstri til innleiðinga nýrra tæknilausna. Viðkomandi ber ábyrgð á framgangi verkefna og vinnur náið með stjórnendum og hagsmunaaðilum til að tryggja árangur og fjarlægja hindranir yfir líftíma verkefna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra verkefnum þvert á samstæðu Kviku
  • Setja upp verkefnaáætlanir, halda utan um skjölun og eftirfylgni verkefna
  • Stuðla að góðum samskiptum við hagsmunaaðila verkefna
  • Veita viðeigandi aðilum reglulega upplýsingagjöf um stöðu verkefna
  • Þátttaka í gæðastjórnunarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi t.d. verkfræði, verkefnastjórnun, viðskiptafræði eða sambærilegt
  • Reynsla af verkefnastjórnun eða sambærilegum störfum, minnst tvö ár
  • Frumkvæði, agi og skipulögð vinnubrögð
  • Færni til að sjá heildarmyndina
  • Geta til að stýra og halda utan um mörg samhliða verkefni
  • Góðir samskiptarhæfileikar og jákvætt viðmót
  • Þekking og reynsla af bankastarfsemi og fjármálamörkuðum er kostur
  • Þekking og áhugi á gæðastjórnun er kostur
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt23. september 2025
Umsóknarfrestur3. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar