
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri (HA) var stofnaður árið 1987. Frá upphafi hefur vöxtur HA verið hraður. Námsframboð hefur aukist jafnt og þétt. Nemendum og starfsfólki hefur fjölgað. Ýmsir samstarfsaðilar hafa komið til og byggingar hafa risið.

Verkefnastjóri
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf verkefnastjóra á skrifstofu Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs til afleysingar vegna fæðingarorlofs. Ráðning er frá 1. febrúar 2023 til 31. janúar 2024.
Menntunar- og hæfniskröfur
Hákólapróf sem nýtist í starfi, meistarapróf æskilegt
Reynsla af skrifstofustörfum og þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
Reynsla af þróun og vinnu með gæðaferla er kostur
Þekking á háskólaumhverfinu og opinberri stjórnsýslu er kostur
Góð almenn tölvukunnátta og hæfileiki til að nýta sér þekkingu
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Góð samskiptafærni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér aðstoð við upplýsingagjöf, skráningu og almenna stjórnsýslu á sviðinu ásamt öðrum verkefnum eftir þörfum sviðsins hverju sinni. Viðkomandi starfsmaður mun einnig starfa með deildarforsetum og öðru starfsfólki sviðsins að umbótum á skipulagi, undirbúningi og framkvæmd náms.
Um fullt starf er að ræða. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri sviðsins og starfsstöð er á Akureyri.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf sem reynir á nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Starfið felst í miklum samskiptum, samvinnu og þjónustu við starfsfólk og nemendur sviðsins. Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið Háskólans á Akureyri býður upp á nám í fimm deildum, Auðlindadeild, Hjúkrunarfræðideild, Iðjuþjálfunarfræðideild, Viðskiptadeild og Framhaldsnámsdeild þar sem boðið er upp á þverfaglegt framhaldsnám í heilbrigðisvísindum.
Auglýsing birt18. nóvember 2022
Umsóknarfrestur30. nóvember 2022
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Norðurslóð 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniTeymisvinnaVerkefnastjórnunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Samningastjóri
Veitur

Verkefnastjóri viðburða og Hlégarðs
Mosfellsbær

Verkefnastjóri
Farskólinn

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Verkefnastjóri stjórnunarkerfa og gæðamála
Landsnet hf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær