

Umsjónarmaður húseigna og búnaðar
Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar 100% ótímabundna stöðu umsjónarmanns húseigna- og búnaðar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjármála og reksturs. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
-
Undirbúningur og frágangur kennslu og fundarrýma.
-
Umsjón og eftirlit með húsnæði, munum og lóð háskólans.
-
Aðstoð við nemendur og starfsfólk.
-
Önnur tilfallandi verkefni.
-
Reynsla og þekking af hússtjórnar- og aðgangsstýrikerfum er æskileg.
-
Reynsla af notkun verkbeiðnakerfa.
-
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
-
Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Góð almenn tölvukunnátta.
-
Gott vald á Íslensku og ensku máli.
-
Hreint sakavottorð er skilyrði.
-
Bílpróf er skilyrði.
-
Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist eðli og ábyrgð starfsins.
Umsókn skal fylgja:
-
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
-
Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
-
Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins.
-
Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.
Íslenska
Enska









