
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag.
Hlutverk stofnunarinnar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum á sviði íslenskrar tungu, bókmennta og handrita. Hún hefur það hlutverk að miðla þekkingu á þeim fræðum ásamt því að varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin.
Öryggisverðir í Eddu
Við leitum að áreiðanlegum og heiðarlegum aðila til að sinna eftirlitshlutverki hjá Árnastofnun í Eddu. Hlutverk öryggisvarða er að tryggja öryggi gagna í Eddu og hafa umsjón með hússtjórnarkerfi Árnastofnunar. Öryggisdeild sinnir daglegu öryggiseftirliti og hefur umsjón með kerfum hússins og tryggir rétt viðbrögð við frávikum.
Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi í Eddu þar sem fjölbreytt menningarstarfsemi fer fram. Við ráðningar í störf hjá Stofnun Árna Magnússonar er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Frekari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðunni www.arnastofnun.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðný Rósa Þorvarðardóttir [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með öryggiskerfum
- Öryggisgæsla í húsinu
- Þátttaka í daglegum störfum öryggisdeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af öryggismálum og hússtjórnarkerfum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta og kunnátta í ensku er nauðsynleg
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg
- Góð almenn tölvukunnátta
- Hæfni til að tileinka sér nýja tækni
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt22. september 2026
Umsóknarfrestur4. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)

