

Valsárskóli óskar eftir kennara til starfa frá 1. ágúst 2025
Tímabundin hlutastaða kennara sem annast mynd- og textílmennt.
Valsárskóli er fámennur skóli á Svalbarðseyri, í 12 km fjarlægð frá Akureyri. Einkunnarorð skólans er umhyggja, virðing, metnaður og gleði. Nánari upplýsingar um Valsárskóla er hægt að sjá á https://skolar.svalbardsstrond.is og við hvetjum umsækjendur til að kynna sér starf skólans nánar þar. Vakin er athygli á jafnréttisstefnu Svalbarðsstrandarhrepps um jafnan hlut kynja í störfum. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 27.maí 2025. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda. Umsókn skal skila á netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar veitir María Aðalsteinsdóttir skólastjóri: 4645510, 8640031 og í tölvupósti.
Svalbarðsstrandarhreppur áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
● Stuðlar að velferð og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
● Vinnur samkvæmt stefnu skólans
● Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
● Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni
● Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
● Listgreinakennari þarf að hafa haldgóða þekkingu á kennslufræði listgreina og menntun í list- og/eða textílmennt
● Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
● Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi
● Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
● Reynsla sem nýtist í starfi
● Stundvísi og samviskusemi
● Góð íslenskukunnátta
Fæði












