Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins

Úttekt á gæðum í starfi fræðsluaðila í framhaldsfræðslu

Útboð – úttekt á gæðum í starfi fræðsluaðila í framhaldsfræðslu . Verðtilboð óskast

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) óskar eftir úttektaraðila til að meta gæði hjá fræðsluaðilum í framhaldsfræðslu út frá gæðakerfinu EQM/EQM+. Verkefnið er að framkvæma úttektir og leggja mat á hvort gæði hjá viðurkenndum fræðsluaðilum innan framhaldsfræðslu standist kröfur gæðakerfisins sem um ræðir. Meginhlutverk matsaðila er að tryggja gildi lýsingar fræðsluaðila á gæðaferlinu sem notað er og meta hlutlægt hvort gögn og aðrar upplýsingar uppfylli skilyrði. Sjá nánar á vef FA: frae.is/gaedavottun/.

Helstu verkefni og ábyrgð

Óskað er eftir tilboði í: 

  • Úttektir hjá fræðsluaðilum samkvæmt gæðaviðmiðum EQM/EQM+.
  • Samstarf við FA vegna skipulags og framkvæmdar á úttektum og eftirliti gæðastjórnunar.
  • Reglulegir fundir með FA um framkvæmd, niðurstöður úttekta og þróun gæðakerfisins. 

 

Í lok árs 2023 eru tæplega 20 aðilar, víðsvegar á landinu með EQM/EQM+ gæðavottun og er gert ráð fyrir að svipaður fjöldi verði með vottunina næstu ár. Vottun er gefin út til þriggja ára. Í aðdraganda vottunar er gerð krafa um að úttektaraðili heimsæki alla fræðsluaðila sem óska vottunar. Gerður er samningur til þriggja ára.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Víðtæk þekking og skilningur á fræðslustarfi og faglegum þáttum í námi fullorðinna. 

  • Þekking á lögum og reglugerðum um framhaldsfræðslu ásamt innsýn í þróun á hæfni í atvinnulífinu.  

  • Reynsla af ferla- og gæðamálum 

  • Umtalsverð reynsla af gæðaúttektum og/eða náms- og sjálfsmati.  

  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð ásamt jákvæðu viðhorfi  
Auglýsing birt17. nóvember 2023
Umsóknarfrestur17. desember 2023
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skipholt 50B, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar