Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Útibússtjóri Lindasafns

Bókasafn Kópavogs óskar eftir öflugum stjórnanda í starf útibússtjóra Lindasafns. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Bókasafns Kópavogs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á og stýrir daglegum rekstri Lindasafns, þ.m.t. fjármálum, starfsmannamálum, þjónustu, safnefni, fræðslu og viðburðum, tækjum og búnaði.
  • Sinnir grunnstarfsemi safnsins, s.s. afgreiðslu, upplýsingamiðlun og þjónustu gagnvart gestum.
  • Situr í ýmsums teymum og starfshópum innan safnsins.
  • Starfar náið með forstöðumanni og tekur virkan þátt í stefnumótunarvinnu og framkvæmd og þróun verkefna.
  • Starfar einnig náið með bókasafnsfræðingi Lindaskóla.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði bókasafns- og upplýsingafræða eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Stjórnunarreynsla.
  • Víðtæk reynsla í tölvunotkun.
  • Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti skilyrði og færni í öðru tungumáli kostur.
  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Færni til að vinna undir álagi og sinna mörgum verkefnum.

Bókasafn Kópavogs býður aðgengi að þekkingu og stuðlar að fjölbreyttri, öflugri og skipulagðri menningarstarfsemi- og fræðslu fyrir samfélagið í heild. Safnið hefur það að leiðarljósi að vera í fararbroddi almenningsbókasafna í landinu hvað varðar þjónustu, safnkost og búnað og á safninu starfar samheldinn og öflugur starfsmannahópur. Lindasafn er annað af tveimur útibúum Bókasafns Kópavogs og er það samsteypusafn með Lindaskóla. Það er skólabókasafn fyrir hádegi og almenningsbókasafn eftir hádegi.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Um er að ræða 100% stöðu og
  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í desember.

Með umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Lísa Z. Valdimarsdóttir forstöðumaður Bókasafns Kópavogs í s. 441 6800

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Auglýsing birt8. október 2019
Umsóknarfrestur20. október 2019
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar