Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir leikskólakennara á leikskóla

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir leikskólakennurum til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Á næsta skólaári verða um 190 leikskólabörn á 8 deildum frá eins til 5 ára.

Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.

Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrar-, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar vinnutíma starfsfólks. Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir. Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum.

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
  • Góð samskiptahæfni
  • Reynsla af teymisvinnu æskileg
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 0,25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 0,5% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing birt20. september 2024
Umsóknarfrestur30. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar